Wednesday, September 14, 2005

주말에


Það er stutt í helgina. Ég er sólginn í dans og tónlist svo ég hugsa mér gott til glóðarinnar þar sem von er á miklu fjöri á föstudag. Ég hef velt mér eins og hross í flagi upp úr þessari plötu og skal dansa jafnmikið og ég get á skemmtuninni. Annars er það helst að frétta að ég brá mér í gönguferð út fyrir bæinn í dag. Víðáttan átti misvel við fólk. Segi ekki orð um þetta en þið sem viljið koma á dansskemmtunina um helgina (sem stendur jú alla helgina) hafið samband, því enginn vill dansa við sjálfan sig. Ho ho ho. Eða móður sína!

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

This comment has been removed by a blog administrator.

September 14, 2005 10:42 PM  

Post a Comment

<< Home