Wednesday, September 28, 2005

애기씨름


Þar sem illa gengur í vinnunni hef ég farið að æfa leikfimi í sal sem við leigjum nokkrir saman. Við hitum oftast upp með því að ganga í takt og skokka en svo er þunginn settur á klassískar leikfimiæfingar og fimleika. Annars var ég að hlusta á Leaves sem frændi gaf mér. Hún er ekkert vond. Missti af slatta af lögum en hin voru ágæt. Hef svo lítið hlustað á Coldplay að ég get ekki borið saman. Ef einhver er tilbúinn í klassíska skólaleikfimi þá ætlum við að safna liði í sýningu sem boðuð er í KHÍ í mars. Ekkert dugar nema markmið sé sett. Þetta er nú aldeilis!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home