Wednesday, May 24, 2006

투표하다


Ég held nú að ég skuli fara á laugardag til að kjósa nýja stjórn. Systir mín er í framboði en held ég láti það ósnert. Þá verð ég að klæða mig upp. En verð hvort eð er í búningi þar sem fyrr um daginn eru hátíðahöld í skólanum mínum og ég verð líklega í einhverjum grímubúningi. Svo er bara hvort það náist í veislu um kvöldið. Svo er gaman frá því að segja að allt stefnir í að ég verði önnur vídeóbloggstjarna Íslands. Það er eitthvað sem mig hefur dreymt um í marga daga... næstum eins lengi og það að bjóða alþjóð að fylgjast með góðverka- og heilsuátaki mínu. Það er óhætt að segja að margt sé á prjónunum hér

Wednesday, May 03, 2006

알려지지 않다

Það er loksins þriðjudagur. Enn engir fyrripartar botnaðir í tilefni vorkomu. Hér er einn sem lesandinn getur botnað:

Sífellt endrum sendur austur,
lentur við Vatnaskóg.
Ekki traustur hnokkinn hraustur
laust kristús smkristús nóg.

Nú botnar þú, en ég verð jafnframt að óska aðstoðar í hinu undarlegasta máli. Ég komst í nýja íbúð í vetur. Þar rek ég svo oft augun í þessa hillu en myndirnar eru alltaf jafnókunnunglegar. Svo ef einhver þekkir fólkið á myndunum þá mynda það botna mörg deilumál hér innanhúss. Sérstaklega þetta barn þarna...